Lánsfjárlög 1992

72. fundur
Miðvikudaginn 22. janúar 1992, kl. 10:46:00 (3057)

     Jón Kristjánsson (um atkvæðagreiðslu) :
     Virðulegi forseti. Eins og fram hefur komið í umræðum hér á Alþingi hefur efh.- og viðskn. þingsins beðið Seðlabanka um upplýsingar um stöðu síldarmálanna eins og þau eru nú. Þær upplýsingar hafa enn ekki fengist en í trausti þess að efh.- og viðskn. fái þær upplýsingar og fulltrúar Seðlabanka mæti á fund hennar milli 2. og 3. umr. dreg ég brtt. 382 til baka til 3. umr.