Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992

72. fundur
Miðvikudaginn 22. janúar 1992, kl. 12:13:00 (3068)

     Heilbrigðisráðherra (Sighvatur Björgvinsson) :
     Virðulegi forseti. Með vísan til þess að þrátt fyrir það að hér hefur orðið að fresta eða draga úr vegaframkvæmdum hefur ríkisstjórnin ákveðið að Vestfjarðagöng skuli opnuð á sama tíma og ráð var fyrir gert þó svo að fullnaðarfrágangi verði ekki lokið og að engar breytingar eru gerðar á upphaflegum framkvæmdaáformum, þá segi ég já.