Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992

72. fundur
Miðvikudaginn 22. janúar 1992, kl. 12:23:00 (3070)

     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) :
     Virðulegi forseti. Í 1. gr. samstarfssáttmála ríkis og sveitarfélaga kemur eftirfarandi fram: Aðilar eru sammála um að ríkið og sveitarfélögin samræmi eftir því sem kostur er stefnu sína í opinberum rekstri með það fyrir augum að unnt verði að ná þeim efnahagsmarkmiðum sem ríkisstjórn og Alþingi ákvarða á hverjum tíma. Ég segi já.