Rannveig Guðmundsdóttir
:
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir brtt. á þskj. 399 við frv. til laga um breytingar á lögum nr. 70/1985, um Framkvæmdasjóð Íslands. Ég leyfi mér að flytja þessa brtt. við 4. gr. frv. sem varðar gildistökuákvæði laganna. 4. gr. frv. hljóðar svo:
,,Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1992. Lánasýsla ríkisins tekur frá sama tíma við umsjá allra eigna og skulda, krafna og skuldbindinga Framkvæmdasjóðs Íslands eins og þær standa við gildistöku laga þessara.`` Brtt. er við 4. gr., fyrri málsliður orðist þá svo: Lög þessi öðlast þegar gildi.
Forseti, ég tel að þessi brtt. þurfi ekki frekari skýringa við.