Framkvæmdasjóður Íslands

73. fundur
Miðvikudaginn 22. janúar 1992, kl. 18:35:00 (3141)

     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
     Virðulegi forseti. Fyrir það fyrsta kom það fram að stjórnarmenn voru þarna að framkvæma verk sem þeim var falið af forsrh. Það er því ekki von að þeir hafi verið með miklar varnaðartölur uppi. Í öðru lagi hefur sá sem upplýsti um stöðu sjóðsins gert það með því að leggja til grundvallar upplýsingar sem segja að eignir í fiskeldi á Íslandi séu einskis virði. Sá hinn sami hæstv. forsrh. sagði úr þessum stól fyrir örfáum mínútum að um raunverulegt virði og eignarmat gæti ekkert annað en framtíðin skorið úr.