Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992

73. fundur
Miðvikudaginn 22. janúar 1992, kl. 19:19:00 (3147)

     Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson) (andsvar) :
     Herra forseti. Ég vil aðeins segja að ég hef ekki ástæðu til að ætla annað en að mér hafi verið ráðið heilt af embættismönnum í menntmrn. og öðrum þeim sem ég hef leitað til.
    Ég vil aðeins bæta því við varðandi reglugerðarákvæðið sem sóst er eftir í þessu frv. að menntmrh. fái til þess að ákvarða vikulegan kennslutíma er aðeins í eitt ár vegna þess að 46. gr. þar sem kveðið er á um vikulegan kennslutíma raknar við að nýju á árinu 1993.