Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992

73. fundur
Fimmtudaginn 23. janúar 1992, kl. 01:46:00 (3190)

     Guðrún Helgadóttir (andsvar) :
     Hæstv. forseti. Aðeins til frekari upplýsingar vegna þess að hv. 15. þm. Reykv. vék að hlutabréfaauði og aukningu ákveðinna aðila, þá hefur ekki þótt nóg því að í Morgunblaðinu í dag er sagt frá því að Reykjavíkurborg hafi keypt verslunarhúsnæði Geysis á 53 millj. og talar nú enginn lengur um að fækka verslunum í miðbænum. ,,Húsið verður upplýsingamiðstöð``, stendur hér, með leyfi hæstv. forseta. Til þess að hv. þm. sé alveg ljóst hvert þessir peningar fara: bæði Halldór H. Jónsson og H. Ben koma þar við sögu, Skeljungur, Sjóvá -- Almennar og allt það lið. Þarna koma aðeins 53 millj. til viðbótar.