Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992

73. fundur
Fimmtudaginn 23. janúar 1992, kl. 04:32:00 (3224)

     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (um þingsköp) :
     Virðulegi forseti. Hér hefur ítarlega verið kallað eftir þeim ráðherra sem gegnir eða mun gegna fyrir heilbr.- og trmrh. Ég gegni ekki fyrir heilbr.- og trmrh., en ég er tilbúin að svara þeim spurningum sem ég get í þeim umræðum sem hefur verið beint til heilbrrh. Ég hef að vísu ekki skrifað þær niður og er ekki kunnugt um þær allar, en ég mun eftir bestu getu reyna að svara þeim fyrirspurnum sem fram koma.