Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson)
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Ég tel, þó það sé ekki nema þingtíðindanna vegna, rétt að það komi fram að hér hefur forseti að sjálfsögðu stjórnað fundinum, en ég eins og allir aðrir hlýt að hafa þann rétt að mega rifja upp með forseta hvar við vorum staddir í Dósa eins og kallað var og minna á að 3. umr. lánsfjárlaga er eftir og þar er enginn á mælendaskrá. Það var allt mitt framlag og ég vonast til þess að ég hafi ekki drýgt stóra synd með því að vera forseta innan handar við þá upprifjun.