Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992

74. fundur
Fimmtudaginn 23. janúar 1992, kl. 11:26:00 (3237)

     Ólafur Þ. Þórðarson :
     Herra forseti. Með samþykkt frv. er þjóðarsáttin rofin. Mér er ljóst að það er mikið verk að vinna í ráðuneytum á næstunni að framkvæma þann samtíning á skerðingum sem hér er um að ræða en hugsanlegt að verkið verði boðið út og Sameinaðir verktakar sjái um framkvæmdina. Ég óska ríkisstjórninni til hamingju með að fréttaflutningur af Sameinuðum verktökum og aðgerðum hennar munu birtast í blöðunum á næstunni. Ég segi að sjálfsögðu nei.