Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson)
:
Frú forseti. Landhelgisgæslan á nú þrjú varðskip. Elsta skipið er Óðinn sem var smíðað árið 1960. Á því voru gerðar meiri háttar breytingar árið 1975 og á það síðan settur krani vegna verkefna við viðhald dufla. Sú framkvæmd var gerð árið 1989. Yngri skipin eru Týr sem var byggður 1975 og Ægir sem var byggður 1968.
Óðinn er, eins og af þessum upplýsingum má sjá, nokkuð gamalt skip en yngri skipin Týr og Ægir eru talin vera í tiltölulega góðu ástandi.
Að því er varðar fyrirspurnina sjálfa um hvað líði undirbúningi að endurnýjun skipakosts Landhelgisgæslunnar er það að segja að verkefnum hennar er raðað í forgangsröð og fyrsta verkefnið sem nú blasir við er endurnýjun og viðbót á þyrlukosti gæslunnar sem mjög hefur verið til umræðu í vetur. Það er forgangsverkefni sem nú verður tekist á við. Enn fremur er mikil þörf á að endurbæta starfsaðstöðu og stjórnunaraðstöðu gæslunnar þannig að hún geti gegnt hlutverki sínu og gegnt nýju hlutverki því að hlutverk hennar breytist vitaskuld með breyttum aðstæðum.
Að því búnu kemur að því að huga að endurnýjun skipakostsins en ég ítreka að það er álit gæslunnar að bæði Týr og Ægir séu í tilgölulega góðu standi og til þeirra nota sem Landhelgisgæslan hefur þörf fyrir. Þess vegna er þess ekki að vænta, svo ég svari 2. lið fsp., að gerður verði samningur á þessu ári um smíði nýrra skipa með tilliti til þess hvernig verkefnum hefur verið raðað í forgangsröð. En áætlað er að það geti kostað um 700 millj. kr. að smíða nýtt skip af því tagi sem Landhelgisgæslan ræður nú yfir.
Þá er spurt hvort kannað hafi verið sérstaklega hvort innlendar skipasmíðastöðvar geti annast smíði á nýjum gæslu- og björgunarskipum fyrir Landhelgisgæsluna. Í ljósi þess sem á undan er gengið liggur í augum uppi að það hefur ekki verið kannað sérstaklega. En fyrir fram virðist ekkert vera til fyrirstöðu að innlendar skipasmíðastöðvar gætu annast slík verkefni þegar þar að kemur.