Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson)
:
Frú forseti. Rétt er að taka fram í tilefni af þeirri umræðu sem hér hefur orðið að í dómsmrn. hefur að undanförnu verið unnið að undirbúningi þess að hefja endurskoðun á lögum um Landhelgisgæsluna, hlutverki hennar og skipulagi. Hún hefur sannarlega gegnt og gegnir enn mjög þýðingarmiklu hlutverki í okkar þjóðfélagi. Störf hennar mótuðust um langt árabil eðlilega af þeim átökum sem urðu við úrfærslu landhelginnar. Nú og í framtíðinni þykir mér á hinn bóginn einsýnt að hlutverk hennar ásamt hefðbundnu eftirliti á fiskimiðunum verði í ríkari mæli tengt þjónustu-, öryggis- og björgunarstörfum. Þess vegna leit ég svo á að tímabært væri að taka fyrir heildarendurskoðun á lögum og skipulagi og hlutverki stofnunarinnar og þessa daga er verið að hleypa því verki af stað. Það verður allumfangsmikið og mun taka tillit til þeirra nýju aðstæðna sem Landhelgisgæslan stendur frammi fyrir. Þar verður m.a. kannað hvort eðlilegt og skynsamlegt geti talist að sameina stofnanir eins og Almannavarnir og Landhelgisgæslu og styrkja starfsemi þeirra sem um margt er samtengd. Jafnframt verður kannað með hvaða hætti hægt er að tengja Landhelgisgæsluna við veiðieftirlitið sem nú er alfarið á vegum sjútvrn. Ég sé fyrir mér að inn í þessa athugun geta komið ýmis önnur atriði. Allt þetta er nauðsynlegt að gera í ljósi breyttra aðstæðna og nýrra verkefna. Þess vegna fer verkefnið nú af stað og vænti ég þess að niðurstöður þeirrar athugunar liggi fyrir síðar á þessu ári og þá verði unnt að hrinda í framkvæmd þeim breytingum sem skynsamlegar verða taldar. Það er alveg ljóst að tími er til kominn að endurskipuleggja stofnunina í ljósi breyttra aðstæðna.