Framleiðsla vetnis

76. fundur
Fimmtudaginn 06. febrúar 1992, kl. 13:42:00 (3312)

     Páll Pétursson (andsvar) :
    Frú forseti. Það er mjög mikilvægt að Háskóli Íslands sinni rannsóknum, jafnvel enn þá brýnni rannsóknum en á vetni. Talandi um Háskóla Íslands þá held ég að það ætti að vera forgangsmál að búa svo um hnútana að heilum árgangi verði ekki neitað þar um inngöngu næsta haust.