Útflutningur á raforku um sæstreng

76. fundur
Fimmtudaginn 06. febrúar 1992, kl. 15:18:00 (3326)

     Flm. (Svavar Gestsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. iðnrh. fyrir þessi orð. Ég tók auðvitað eftir því og undirstrika það sérstaklega að hann sagði að það væri víðtæk samstaða um iðjustefnuna, hann sagði ekki stóriðjustefnuna. Ég held að það sé út af fyrir sig rétt að nálgast málið þannig að það sé ágæt samstaða um iðjustefnuna og svo sjáum við til hvernig okkur gengur við iðjustefnuna í iðnn.