Páll Pétursson
(andsvar)
:
Herra forseti. Ég tel að í þeirri ræðu sem ráðherrann var að flytja megi finna nokkrar skýringar á því af hverju bændur á Íslandi tortryggja nokkuð landbúnaðarstefnu Alþfl. og eru ekki sammála hæstv. ráðherra í málflutningi hans og hafi af því talsverðar áhyggjur að hann skuli allt í einu vera sá maður sem meðhöndlar íslensk landbúnaðarmál á erlendum vettvangi. Að öðru leyti ætla ég ekki að gera athugasemdir við þann heimastíl sem ráðherrann var að lesa hér áðan.