Kristinn H. Gunnarsson
:
Virðulegi forseti. Ég vil beina til hæstv. samgrh. tveimur fyrirspurnum. Sú fyrri varðar jarðgöngin á norðanverðum Vestfjörðum. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort hafnar eru viðræður við verktaka um seinkun á framkvæmdum þar og hvort fyrir liggi eitthvert mat á því hversu mikið ríkið muni þurfa að borga þeim verktaka í bætur fyrir breytingar á verksamningi.
Ég vil í öðru lagi spyrja varðandi þessa framkvæmd: Hvernig hyggst samgrh. láta mæta þessum niðurskurði, 250 milljónum, á framkvæmd til ganganna á þessu ári? Hvernig verður því mætt í verkinu sjálfu? Hvar verði dregið úr?
Hin fyrirspurnin varðar vegsvalir á Óshlíðarvegi milli Hnífsdals og Bolungarvíkur sem er eina samgönguleið Bolvíkinga við umheiminn fyrir utan sjó. Þar hefur verið ákveðið að byggja á þessu ári tvo vegskála til að treysta samgöngur. Nú hef ég haft af því fréttir að það muni vera uppi áform um að hætta við þá framkvæmd og fresta því um ótiltekinn tíma að reisa þessa vegskála eins og áður var fyrirhugað. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Hver eru áform hans varðandi byggingu þessara tveggja vegskála á Óshlíð á þessu sumri?