Lokun fæðingardeilda

78. fundur
Þriðjudaginn 11. febrúar 1992, kl. 14:09:00 (3354)

     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) :
    Hæstv. forseti. Hv. þm. er kunnugt um að það hefur verið óhjákvæmilegt nú að draga nokkuð saman í ríkisútgjöldum til þess að reyna að koma stjórn á fjármál ríkisins. Einn liður í því er að draga nokkuð eða lítillega saman vegaframkvæmdir. Það hlýtur að bitna á einhverjum framkvæmdaliðum á Vestfjörðum. En eins og ég sagði áðan og hv. þm. á að vera kunnugt þá verða þessi mál rædd innan þingmannahóps Vestfirðinga eins og í öðrum kjördæmum og þar ræðst hvernig verður farið með það fé sem varið er til vegaframkvæmda á Vestfjörðum.