Lánasjóður íslenskra námsmanna

78. fundur
Þriðjudaginn 11. febrúar 1992, kl. 16:40:00 (3385)

     Stefán Guðmundsson (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Það kom fram í máli virðulegs forseta áðan að gert hefði verið samkomulag um að eftir að fulltrúar þingflokka hefðu talað í því máli sem hér á að vera á dagskrá, um Lánasjóð ísl. námsmanna, yrði því máli frestað til morguns. Mín spurning til forseta í framhaldi af því er: Hyggst forseti þá slíta fundi hér í dag eða ætlar forseti að halda áfram með önnur þingmál?