Lánasjóður íslenskra námsmanna

78. fundur
Þriðjudaginn 11. febrúar 1992, kl. 16:46:00 (3388)

     Stefán Guðmundsson (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Ég hef ekki orðið var við að ég væri farinn að tapa verulegri heyrn. En ég sakna þess að hafa ekki heyrt svar virðulegs forseta við þeirri spurningu sem ég bar hér fram áðan, hvort það væri verið að fresta fundi fyrir einhverja ákveðna aðila hér inni vegna Lánasjóðs ísl. námsmanna og síðan ætti að halda áfram með einhver önnur mál.