Lánasjóður íslenskra námsmanna

79. fundur
Miðvikudaginn 12. febrúar 1992, kl. 14:20:00 (3407)

     Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson) (andsvar) :
    Herra forseti. Að sjálfsögðu þar sem er verið að mótmæla er mótmælt ákvörðunum Alþingis. Þetta eru ekki prívatákvarðanir mínar, niðurskurðurinn. En ég er einfaldlega að segja það að ég ber fulla ábyrgð á honum sem ráðherra í ríkisstjórn Íslands og ég hef tekið þátt í því að greiða atkvæði með fjárlögum þar sem er skýrt sagt hvaða fjármunir eru til ráðstöfunar í hinum einstöku þáttum fjárlaganna. Svona einfalt er það. Ég skil vel að mótmælin beinist að Alþingi en ég ítreka að ég er ekki að skjóta mér undan ábyrgð í einu eða neinu.