Áfengiskaup opinberra aðila hjá ÁTVR

80. fundur
Fimmtudaginn 13. febrúar 1992, kl. 10:54:00 (3439)

     Ólafur Þ. Þórðarson :
    Herra forseti. Ég vil þakka fyrirspyrjanda fyrir þessa fsp. og lýsa því yfir að ég er sammála hans afstöðu hvað það varðar að auðvitað eiga allar stofnanir að kaupa áfengið á kostnaðarverði. Það er rökrétt. Hitt er eins og fram hefur komið og við höfum reynslu af hættulegt og hefur þegar kostað þessa þjóð veruleg óþægindi, svo að ekki sé meira sagt.