Upplýsingaskylda ráðuneyta og opinberra stofnana

80. fundur
Fimmtudaginn 13. febrúar 1992, kl. 12:26:00 (3482)

     Fyrirspyrjandi (Finnur Ingólfsson) :
    Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. forsrh. skýr og greinargóð svör við þessari fsp. Ég tek undir það með hv. þm. Hjörleifi Guttormssyni að það er afskaplega mikilvægt að þessu máli verði hraðað. Ég heyrði það á máli hæstv. forsrh. að svo mun verða og það væri gott ef þetta yrði kannski eitt af fáum verkum sem ríkisstjórnin kæmi í framkvæmd áður en hún færi frá.