Lánasjóður íslenskra námsmanna

82. fundur
Mánudaginn 17. febrúar 1992, kl. 14:17:00 (3515)

     Forseti (Björn Bjarnason) :
    Nú þegar hafa fjórir þingmenn óskað eftir að gefa andsvar við ræðu hæstv. menntmrh., fimm þingmenn. Augljóst er að ekki komast allir að á þeim 15 mínútum sem eru til stefnu. Forseti mun gefa þingmönnum orðið eftir því sem þeir báðu um það en mælist til þess að þeir verði stuttorðir ef kostur er.