Kristín Einarsdóttir
(andsvar)
:
Virðulegur forseti. Hæstv. menntmrh. svaraði ekki einni af þeim spurningum sem ég beindi þó til hans í máli mínu. Ég spurði hann m.a. að því hvort hann teldi það réttlátt að nemendur sem væru nú í námi og ættu eftir að fara í nám greiddu þann fortíðarvanda sem LÍN ætti við að etja. Ég lýst því að ég teldi það ekki réttlátt. Það er mjög óréttlátt að þeir nemendur sem núna eru í námi og ætla að fara í nám eigi að greiða þennan vanda. Það var eingöngu það sem ég spurði um, það kom ekki fram. Hæstv. menntmrh. sagði að hann hefði ástæðu til að ætla að fjárveitingavaldið mundi ekki vilja taka á þessum vanda. Ég skora á hæstv. menntmrh. að flytja tillögu í Alþingi sem tekur á vanda lánasjóðsins með réttlátari hætti en felst í frv. um Lánasjóð ísl. námsmanna.