Lánasjóður íslenskra námsmanna

82. fundur
Mánudaginn 17. febrúar 1992, kl. 14:26:00 (3522)

     Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson) (andsvar) :
    Herra forseti. Þetta frv. er stjfrv. og ég veit að af langri reynslu m.a. í ríkisstjórn þá veit hv. þm. Svavar Gestsson það. Hann hefur meira að segja sjálfur áreiðanlega lent í því að leggja fram frv. sem ekki var full eining um milli stjórnarflokkanna sem þá voru. Upplýst hefur verið af einstökum talsmönnum Alþfl. að áherslumunur sé á milli flokkanna í þessum málum. Það var aldrei neitt leyndarmál. Við meðferð málsins í hv. menntmn. vonast ég til að takist að jafna þann áherslumun og ég vona að það takist að jafna hann á milli allra, ekki bara stjórnarflokkanna heldur líka milli stjórnar og stjórnarandstöðu. Þetta er sem sagt stjfrv.