Lánasjóður íslenskra námsmanna

82. fundur
Mánudaginn 17. febrúar 1992, kl. 14:27:00 (3523)

     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Herra forseti. Það er athyglisvert að heyra þá yfirlýsingu hæstv. menntmrh. að um sé að ræða stjfrv. en Alþfl. eða talsmenn hans hafa ekki sagt að hér væri um áherslumun að ræða. Þeir hafa sagt: Hér er um grundvallarmun í afstöðu að ræða. Það er auðvitað tvennt ólíkt hvort menn eru að fjalla um einstök tæknileg atriði, áherslubreytingar af ýmsu tagi eða grundvallaratriði.
    En mér finnst athyglisvert að hæstv. menntmrh. skuli standa í þeirri trú að Alþfl. standi að þessu frv. sem stjórnarflokkur. Það bendir þá til þess að Alþfl. hafi ekki komið athugasemdum sínum á framfæri við hæstv. menntmrh.