Lánasjóður íslenskra námsmanna

82. fundur
Mánudaginn 17. febrúar 1992, kl. 18:24:00 (3532)

     Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (andsvar) :
    Frú forseti. Ég vil vekja athygli þingmanna og sérstaklega þingflokksformanns Alþfl. á því að ég var ekki með neinar yfirlýsingar. Ég spurði einfaldrar spurningar. Er málefnaágreiningur milli þingflokksformannsins og formanns Alþfl. um þetta efni? Ég var ekki að tala um hæstv. menntmrh. í þessu tilviki eða hans hugmyndir eða hvaða tillit hann mundi taka þegar þar að kæmi að farið væri að vinna þetta mál í menntmn. Ég var að spyrja um grundvallarágreining í Alþfl., hvort hann væri til staðar.