Náttúrufræðistofnun Íslands

83. fundur
Þriðjudaginn 18. febrúar 1992, kl. 15:22:00 (3547)

     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Mér fannst mega skilja það á orðum hæstv. umhvrh. áðan að ekki gætu farið saman hagsmunir bænda og annars almennings, bændur eru nú hluti af öllum almenningi í landinu gagnvart Landgræðslunni. Ég vona að ekki hafi verið hægt að skilja ræðu mína á þennan hátt. Ég held þvert á móti að við náum aldrei landi í landgræðslumálum öðruvísi en að finna hina sameiginlegu hagsmuni. Það er ég sannfærður um að hægt sé að gera.