Viðbrögð ríkisstjórnarinnar við atvinnuleysi í landinu

83. fundur
Þriðjudaginn 18. febrúar 1992, kl. 18:12:00 (3575)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Á grundvelli samkomulags sem gert var um þessa umræðu milli þingflokkanna og lýst var mjög greinilega í upphafi umræðunnar þá er þessari umræðu nú lokið. Óskað hefur verið eftir því að veita andsvar. Ég tel að það geti ekki rúmast innan 56. gr. þingskapanna þar sem segir að forseti ,,geti`` leyft þingmönnum að veita stutt andsvar. Ég tel að hann geti það ekki á grundvelli þess samkomulags sem þingflokkar höfðu gert fyrir þessa umræðu.