Fyrirspyrjandi (Ingibjörg Pálmadóttir)
:
Virðulegi forseti. Á þskj. 237 er svohljóðandi fsp. til hæstv. iðnrh. varðandi Sementsverksmiðju ríkisins:
1. Er fyrirhugað að selja hlutabréf í Sementsverksmiðjunni á almennum markaði verði hún gerð að hlutafélagi?
2. Ef svo er, á hve löngum tíma er fyrirhugað að selja hutaféð og kemur til greina að selja verksmiðjuna í einu lagi?
3. Hvaða breytingum er ætlað að ná fram með sölu hlutafjár í verksmiðjunni?
Ég tel mjög mikilvægt að fá skýr svör við þessum spurningum. Í upphafi umræðna um einkavæðingu almennt kom fram hjá hæstv. forsrh. að einokunarfyrirtæki skyldu ekki seld. En síðar, það var í umræðu um ráðstafanir í ríkisfjármálum, kom fram hjá sama hæstv. ráðherra að sama Sementsverksmiðja ríkisins skuli vera eitt þeirra fyrirtækja sem beri að selja.
Eins og öllum er kunnugt er Sementsverksmiðjan eina fyrirtækið á Íslandi sem framleiðir sement. Þrátt fyrir að innflutningur hafi verið gefinn frjáls árið 1975 eftir að Ísland gerðist aðili að EFTA nýtur íslenska sementið eðlilegrar fjarlægðarverndar. Því er spurt: Er sala einokunarfyrirtækja það sem koma skal án þess að hér séu í gildi lög um einokun og hringamyndun?
Það fyrirtæki sem er til umræðu, Sementsverksmiðja ríkisins, hefur aldrei verið baggi á ríkissjóði. Þvert á móti hefur hún staðið af sér öll áföll og efnahagssveiflur og hefur fjármagnað nýjar framkvæmdir af eigin rammleik. Því spyr ég: Er það vegna stundarvandræða ríkissjóðs að slíkar hugmyndir koma upp? Eða hver er hugmyndafræðin á bak við breytinguna? Ætlar hæstv. ríkisstjórn að freista þess að ná fram lægra sementsverði með sölu? Sjá menn einhver merki þess að slíkt sé auðveldara með einkavæðingu? Er eitthvað í rekstri fyrirtækisins sem hæstv. ríkisstjórn telur að megi betur fara ef um einkavæðingu er að ræða?
Um nokkurra ára skeið hefur farið fram markviss hagræðing hjá fyrirtækinu sem þýðir að starfsfólki hefur fækkað með aukinni tæknivæðingu. Því spyr ég hvort um er að ræða einhverjar nýjar hagræðingarhugmyndir sem hæstv. ríkisstjórn hefur í huga með sölu?
Á sl. ári var fyrirtækið réttum megin við strikið hvað hagnað snertir og hefur reyndar verið það nokkur undanfarin ár og sum árin skilað verulegum hagnaði. Fyrir Akurnesinga er Sementsverksmiðjan afar mikilvægt fyrirtæki og góður atvinnurekandi. Því vil ég sem hérna stend kanna hvaða hugmyndir hæstv. iðnrh. hefur í huga því að ég tel að hlutafélagsformið sem slíkt auki sveigjanleika í stjórnun fyrirtækisins en tel rétt að hlutaféð sé allt í eigu ríkissjóðs. Svör ráðherra skipta því miklu máli um að hvaða ákvörðun ég tel rétt að taka þegar frv. um Sementsverksmiðjuna kemur til endanlegrar afgreiðslu.