Gjafakort sem heimila líffæraflutninga

85. fundur
Fimmtudaginn 20. febrúar 1992, kl. 11:14:00 (3640)

     Jón Kristjánsson :
    Herra forseti. Ég vil bera af mér þær sakir að ég hafi sagt ósatt hér í ræðustól áðan. Það er út af fyrir sig þó að mér, sem hef unnið við dreifbýlisverslun í 20 ár, sé sagt að ég skilji þetta ekki réttum skilningi. Ég læt mér það í léttu rúmi liggja. En hins vegar þykir mér verra þegar sagt er að ég hafi sagt ósatt í því --- hvað er vörugjald, sem er lagt á vörur út á land mörgum sinnum, annað en álögur á dreifbýlisverslunina? Ég tek það ekki aftur.