Málefni fatlaðra

87. fundur
Mánudaginn 24. febrúar 1992, kl. 14:57:00 (3711)

     Geir H. Haarde (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Eins og kom fram í þessu svari snerust athugasemdir hv. þm. Guðrúnar Helgadóttur ekki um það mál sem hér er til umræðu. Það var verið að vega að viðkomandi þingmanni vegna allt annars máls sem ekki er hér til umræðu í dag. Ég ítreka að þessar aðdróttanir í garð hv. þm. Láru Margrétar Ragnarsdóttur eru ómaklegar og ósanngjarnar en e.t.v. eftir þessa síðustu ræðu hv. þm. Guðrúnar Helgadóttur henni sæmandi.