Málefni fatlaðra

87. fundur
Mánudaginn 24. febrúar 1992, kl. 14:58:00 (3712)

     Guðrún Helgadóttir (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Mér þykja sumir hv. þm. vera orðnir allviðkvæmir. Ég hélt að menn mætti greina hér á um aðgerðir í veigamiklum málum eins og heilbrigðismálum og raunar hvaða málum sem er áður en þingflokksformenn stæðu hér upp til að tala um að vegið væri að starfsheiðri einhvers. Og það maðurinn sem hleypti af stað varðandi þann þingmann, sem hérna stendur, þjóðarfári fyrir nokkrum árum, ómaklega og ósiðlega án þess að ástæða væri talin til að þingflokksformaður þingmannsins kæmi hér upp og gréti fyrir undirritaða.