Málefni fatlaðra

87. fundur
Mánudaginn 24. febrúar 1992, kl. 16:01:00 (3719)

     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Herra forseti. Ég tók ekki eftir því að hæstv. félmrh. svaraði spurningu minni um þjónustugjöld og ég vil ítreka hvort það er rétt skilið hjá fjárlagastofnun að verði frv. að lögum opni það heimildir til að fjármagna starfsemi og þjónustu við fatlaða með því að leggja á þjónustugjöld.