Málefni fatlaðra

87. fundur
Mánudaginn 24. febrúar 1992, kl. 16:03:00 (3721)

     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Herra forseti. Ég þakka hæstv. félmrh. fyrir svarið og vil jafnframt segja að ég tel óhjákvæmilegt að sú nefnd sem um málið fjallar fái þetta til athugunar því að þó að hér sé einungis um heimild að ræða er bersýnilega nauðsynlegt að skoða það mál aðeins betur.