Málefni fatlaðra

87. fundur
Mánudaginn 24. febrúar 1992, kl. 16:04:00 (3722)

     Guðrún Helgadóttir (andsvar) :
    Herra forseti. Ég skal ekki tefja málið en ég ætla aðeins að ítreka við hæstv. ráðherra, af því að ég virðist hvergi geta fengið neitt svar við því: Hvernig er háttað samstarfi félagsmálayfirvalda og Öryrkjabandalagsins varðandi þá miklu fjármuni sem koma um talnagetraunir?