Byggðaáætlun

88. fundur
Þriðjudaginn 25. febrúar 1992, kl. 13:47:01 (3730)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
    Virðulegi forseti. Það var nauðsynlegt að mínu mati að vinna að því að setja Byggðastofnun reglugerð sem hafði láðst að gera í háa herrans tíð. Það hefur nú verið gert. Stofnunin vinnur að áætlun af því tagi sem þingmaðurinn nefndi og ég vænti þess að það muni ekki dragast lengi. Ég get því miður ekki nefnt þá dagsetningu þegar hægt verður að leggja slíka áætlun fyrir þingið. Ég er þingmanninum sammála um að það er brýnt.