Vegáætlun 1991--1994

88. fundur
Þriðjudaginn 25. febrúar 1992, kl. 14:39:00 (3737)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Í tilefni af ræðu hv. þm. vil ég geta þess að hann talaði í sautján mínútur. Ég taldi mér ekki fært að grípa fram í ræðu hans vegna þess að ég hafði gefið honum til kynna að mér var ókunnugt um hvort slík ósk hefði komið fram. Það er hárrétt að hér eru ný þingsköp í gildi og ég tel að hér þurfi að hafa mjög góð samráð. Ég tel rétt að við gerum hlé á fundinum í fimm mínútur á meðan við leitum samráðs um það hvernig við höldum áfram fundi og fundarstjórn.