Páll Pétursson :
Frú forseti. Mér fannst ræða hv. 3. þm. Reykv. frekar undarleg. Hann átaldi það að umræðan hefði farið að snúast um að hæstv. utanrrh. hefði afþakkað heimsókn til Ísraels en gerði hana svo að miklu umræðuefni sjálfur. En ég kem hér m.a. vegna þess að hv. 3. þm. Reykv. vakti athygli á ágætri ályktun Alþingis frá 18. maí 1989. Ég er svo hamingjusamur að hafa verið flm. að þeirri ályktun ásamt hv. þm. Hjörleifi Guttormssyni og Kristínu Einarsdóttur. Ég er reglulega stoltur af því að hafa átt hlut að því máli og ég tel að heppilegt sé að lesa þessa ályktun frá orði til orðs úr því að hún var gerð hér að umræðuefni. Ályktun okkar, sem við lögðum fram og er á þskj. 105 frá 111. löggjafarþingi, kom frá utanrmn. með ofurlitlum breytingum. Hún var einróma samþykkt hér á Alþingi. Hún hljóðar svo, með leyfi forseta:
,,Tillaga til þingsályktunar um deilur Ísraels og Palestínumanna.
Alþingi ályktar að lýsa áhyggjum sínum yfir því ástandi sem ríkir fyrir botni Miðjarðarhafs og telur það stöðuga ógnun við heimsfriðinn.
Alþingi skorar á ísraelsk stjórnvöld að koma í veg fyrir manndráp á varnarlausum borgurum og leggur áherslu á að þau virði mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna og fjórða Genfarsáttmálann um vernd óbreyttra borgara á stríðstímum. Nauðsynlegt er að báðir aðilar forðist ofbeldisverk.
Alþingi styður kröfuna um að tafarlaust verði haldin alþjóðleg friðarráðstefna á vegum Sameinuðu þjóðanna með þátttöku allra deiluaðila. Nauðsynlegt er að báðir aðilar sýni raunverulegan samkomulagsvilja og viðurkenni rétt hvor annars í samræmi við ályktun Sameinuðu þjóðanna nr. 181 frá 29. nóv. 1947 sem ásamt ályktunum öryggisráðsins nr. 242 frá 1967 og nr. 338 frá 1973 eru sá grundvöllur er skapað getur varanlegan frið og öryggi í Austurlöndum nær.
Alþingi leggur áherslu á að viðurkenna beri sjálfsákvörðunarrétt palestínsku þjóðarinnar og tilverurétt Ísraelsríkis. Einnig ber að viðurkenna rétt palestínskra flóttamanna til að snúa aftur til fyrri heimkynna sinna í samræmi við margítrekaðar ályktanir Sameinuðu þjóðanna.
Alþingi telur að Ísland eigi að hafa vinsamleg samskipti við Frelsissamtök Palestínu, PLO.``
Ég tel að þessi ályktun eigi erindi í þessa umræðu í heild. Ég er samþykkur hverju orði sem í henni stendur. Ég tel að þar hafi verið mörkuð skynsamleg stefna af hálfu Alþingis og ég er, eins og ég sagði áðan, stoltur af að hafa átt hlut að því máli.
Ég tel að ferð hæstv. forsrh. hafi ekki verið nákvæmlega í samræmi við þessa ályktun. Hv. þm. Steingrímur Hermannsson, þáv. forsrh., fór með þessa ályktun í farteski sínu til Egyptalands. Hann fór í einkaheimsókn til Jassir Arafats beinlínis samkvæmt og í samræmi við þessa ályktun en niðurlag hennar hljóðar svo: ,,Alþingi telur að Ísland eigi að hafa vinsamleg samskipti við Frelsissamtök Palestínu, PLO.`` Þetta var samþykkt 18. maí 1989 samhljóða af þingheimi.
Hæstv. forsrh. svaraði spurningu minni um gestgjafana. Ég spurði ekki um hvað hann hefði borðað í þessum veislum. Það skiptir mig engu máli og mér hefði meira að segja verið alveg sama þótt hann hefði fengið lítið að borða. Í kvöldverði, aðalveislunni, sem ríkisstjórnin hélt honum gat hann ekki um aðalgestgjafann. Það var nefnilega ekki Shamir sem var aðalgestgjafinn. Það var samkvæmt blaðafregnum --- og nú hef ég það ekki staðfest frá hæstv. forsrh. sjálfum því hann vék sér undan að upplýsa það hér í ræðustólnum --- sjálfur innflytjendamálaráðherrann. Hvers vegna skyldi ríkisstjórn Ísraels sýna forsrh. Íslands þá virðingu eða hitt þó heldur að velja nákvæmlega innflytjendamálaráðherrann til þess að vera gestgjafi í þessari veislu? Þetta finnst mér ekki smekklegt hjá Ísraelsmönnum, það verð ég að segja. Innflytjendamálaráðherrann er með nokkrum hætti tákn fyrir þau vandamál sem hafa verið sköpuð á þessu svæði og þá hernaðar- og útþenslustefnu sem þarna er rekin.
Hæstv. forsrh. nefndi fleiri lönd sem við værum ekki að gera athugasemdir við að hann hefði ekki heimsótt. Ég ætla bara að vona að hæstv. forsrh. fari ekki að flana í opinbera heimsókn ti Íraks að heimsækja Saddam Hussein. Ég mun þá óska eftir umræðum utan dagskrár á Alþingi áður en hann fer í þá ferð.
Hann taldi upp hóp af utanríkisráðherrum sem hefðu heimsótt Ísrael á undanförnum mánuðum. Ég tel því ekki saman að jafna. Þessir utanríkisráðherrar eru allir að tign langt undir standi hæstv. forsrh. Davíðs Oddssonar. ( Forsrh.: Ég nefndi forsætisráðherra.) Hann nefndi líka forsætisráðherra en ég tók eftir því að hann nefndi ekki einn sem blöðin gátu um að hefði verið þarna á ferðinni um þetta leyti, forsætisráðherra Suður-Afríku. Ég tel að þessi ferð hafi verið misráðin frá upphafi. Ég tel að ferðin hafi verið óheppileg. Það hafi verið illa og með dónaskap tekið á móti forsrh. hvað svo sem honum kann að finnast sjálfum. Hún er vel heppnuð að því leyti einu að hæstv. forsrh. er blessunarlega kominn heim heill á húfi. Ég verð að segja að ég saknaði hans ekkert sérstaklega þessa daga en mér þykir betra að hann er kominn heim heill á húfi svo að ég ætla að segja eins og altítt er meðal Íslendinga: Velkominn heim.