Fyrirspyrjandi (Finnur Ingólfsson) :
Virðulegi forseti. Ef ég hef tekið rétt eftir þá sagði hæstv. heilbr.- og trmrh. að engin plön lægju fyrir í heilbrrn. um stofnun réttargeðdeildar. Þetta er ekki alls kostar rétt því að í maí 1990 skipuðu heilbrrh. og dómsmrh. í sameiningu nefnd til að gera tillögur um fyrirkomulag réttargeðdeildar hér á landi og með hvaða hætti geðsjúkir afbrotamenn skyldu vistaðir. Sá sem hér stendur var formaður þeirrar nefndar. Sú nefnd skilaði af sér í mars 1991 og niðurstöður nefndarinnar voru þessar:
,,Nefndin leggur til að komið verði á fót hér á landi réttargeðdeild sem verði í starfstengslum við einhver geðsjúkrahús og er slíkt fyrirkomulag í samræmi við það sem viðgengst í nágrannalöndunum. Hlutverk réttargeðdeildar verði þjónusta við þessa ósakhæfu afbrotamenn, þjónusta við geðsjúka afplánunarfanga og þjónusta við þá sem undirgangast þurfa sérstakar geðrannsóknir.``
Reginmunur er á því hvort menn eru að tala um meðferðarheimili eða réttargeðdeild og því er að verða grundvallarbreyting á eins og ég hef skynjað af umræðunni.
Að mínu viti er mikilvægt af hagkvæmnisástæðum að fangelsum sé veitt slík þjónusta frá réttargeðdeild og einnig þarf að veita mun víðtækari og betri geðlæknisþjónustu en nú viðgengst í fangelsum og þess vegna gæti réttargeðdeild einnig haft því hlutverki að gegna. En eins og ég skil hæstv. heilbr.- og trmrh. verður hlutverk vistheimilisins að Sogni í Ölfusi fyrst og fremst til þess að vista öryggisgæslumenn en geðsjúkir afplánunarfangar og þeir sem undirgangast þurfa geðrannsóknir sitja við sama borð og áður og verður engin breyting á réttarstöðu þeirra. Því er að mínu viti um grundvallarbreytingu að ræða frá þeim hugmyndum sem áður fyrr voru uppi.