Framleiðsla og sala á búvörum

91. fundur
Fimmtudaginn 27. febrúar 1992, kl. 14:20:00 (3834)

     Páll Pétursson :
    Frú forseti. Við framsóknarmenn getum með engu móti fallist á að heimila landbrh. að brjóta nýlega gerðan búvörusamning. Hér er um það að ræða að greiða sauðfjárbændum ekki í ár 1 / 6 hluta af launum þeirra. Þetta þýðir með öðrum orðum að haldið er eftir tveggja mánaða kaupi bændafjölskyldnanna í landinu. Ég segi nei.