Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson)
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Þeim sem hér hóf andsvör er vitaskuld fullkunnugt um það að því fé sem fæst fyrir aflaheimildir Hagræðingarsjóðs verður varið til að kosta Hafrannsóknastofnun samkvæmt sérstakri heimild í lögum og ákvæðum fjárlaga. Allt annað er hreinn útúrsnúningur. ( Gripið fram í: Nei.)
Um vextina. Það er vissulega rétt hjá hv. þm. að hvert prósentustig hjá sjávarútveginum kunni að breyta greiðslum hans um verulegar fjárhæðir. Það var nákvæmlega það sem ég nefndi, virðulegi þingmaður, að frá því í ársbyrjun í fyrra þar til í byrjun þessa árs hafa raunvextir í sjávarútvegi, og vextir Fiskveiðasjóðs, lækkað um meira en 1% þannig að hann veit það sjálfur hvaða áhrif það hefur haft.