Umferðarlög

92. fundur
Föstudaginn 28. febrúar 1992, kl. 14:09:00 (3917)

     Kristinn H. Gunnarsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég vil bæta því við að ég las einmitt úr umsögnum nokkurra þeirra aðila eða flestra sem lýstu yfir stuðningi við þá breytingu að flytja verkefnið milli stofnana. Flestir af þeim höfðu

fyrirvara um afstöðu sína, þeir vöruðu við því að skert yrði fé til umferðarmála. Það er nákvæmlega það sem hefur gerst, fyrirvarinn er virkur.