Jón Kristjánsson (andsvar) :
Herra forseti. Það kom fram í ræðu hæstv. ráðherra að það væri misskilningur hjá mér að vinna ætti að tengingu Norður- og Austurlands á þessu kjörtímabili. Það er staðreynd að þetta stendur í hinni hvítu bók sem ríkisstjórnin gaf út. Það hefur vakið væntingar hjá fólki að ríkisstjórnin ætli að vinna að þessu máli á kjörtímabilinu því hvíta bókin fjallar væntanlega um þetta kjörtímabil. Ekki nema hún fjalli um það sem ríkisstjórnin ætlar að gera eftir næsta kjörtímabil. Ég hef ekki litið svo á. En ef svo er ekki og það á að gera þetta eftir kjörtímabilið þá er ekki orðinn svo mikill munur á þessum áformum og langtímaáætlun. Því það er ekki rétt hjá hæstv. ráðherra að í langtímaáætlun séu áform um að vinna á leiðinni Sýslumörk--Heiðarendi á öðru og þriðja tímabili langtímaáætlunar. Mér er fullkomlega ljóst að þeir fjármunir sem eru til þess ætlaðir eru ekki nógir, en stefnumörkunin var fólgin í því að setja þetta þarna inn og vilji var fyrir því að vinna að þessu máli.
Hvað jarðgöng á Austurlandi snertir þá munum við þingmenn Austurlands, a.m.k. þessir sem nú eru á þingi, maður veit ekkert hverjir það verða eftir næstu kosningar, vinna að því að ná samstöðu um það mál heima fyrir. Við höfum unnið að þessum málum í nánu samstarfi við sveitarstjórnarmenn í kjördæminu og viljum gjarnan hafa gott samstarf við stjórnvöld og ráðherra á hverjum tíma um röð framkvæmda og tala í takt um þau mál.
Ég treysti því að við getum haft slíkt samstarf við núv. samgrh. því það hefur ætíð verið svo að áríðandi er að hv. þm. og þeir ráðherrar sem fara með völd á hverjum tíma tali í takt.