Eyjólfur Konráð Jónsson
:
Herra forseti. Ástæðan til þess að ég stíg hér í stólinn eru ummæli um að Kanadamenn séu nú að byrja að verja fiskimið sín utan 200 mílnanna. Það er eiginlega skömm frá því að segja að við Íslendingar skulum ekki fyrir löngu hafa byrjað að verja réttindi okkar, t.d. á Reykjaneshrygg, út í 350 mílur. Þau réttindi eigum við og getum varið og eigum að verja. Við eigum að efla okkar landhelgisgæslu og beita henni til að hrekja óviðkomandi þjóðir af þessum miðum.
Það er tímanna tákn að Kanadamenn skuli leita til okkar ágæta sjóliðsforingja, sem við þekkjum, til Helga Hallvarðssonar, fá hann í lið með sér á meðan við gerum ekki neitt. Þetta er vansæmandi og við verðum að fara að snúa okkur að því að gæta þessara réttinda okkar. Ég er sekur eins og aðrir um að hafa ekki gert nægilega mikið í því. Það er alveg ljóst að þennan rétt eigum við. Við eigum fiskveiðiréttindi og öll réttindi, hafsbotnsréttindi og réttinn til að friða þessi hafsvæði eftir réttum lögum hafréttarins. Og við höfum ekki sinnt því að beita þessum heimildum okkar vegna þess að við höfum stanslaust verið að rífast um hluti sem eru auðvitað algjörir smámunir á móti því að við friðum allt hafsvæðið í sameiningu og samvinnu við Kanadamenn og Breta, allt hafsvæðið frá Kanada til Noregs og Skotlandsstranda.