Iðn- og verkmenntun

95. fundur
Fimmtudaginn 05. mars 1992, kl. 12:04:00 (4000)

     Flm. (Stefán Guðmundsson) :
    Virðulegi forseti. Ég tala hér fyrir till. til þál. um endurmat iðn- og verkmenntunar. Flm. með mér að till. eru Finnur Ingólfsson, Valgerður Sverrisdóttir og Guðni Ágústsson. Tillagan er þannig:
    ,,Alþingi ályktar að fela menntamálaráðherra að kveðja saman starfshóp er hafi það verkefni að endurmeta iðn- og verkmenntun í landinu og gera tillögur að breyttu og bættu skipulagi.
    Starfshópurinn ljúki störfum eigi síðar en í janúar 1993.``
    Í greinargerð með till. segir m.a.:
    ,,Megintilgangur þessarar tillögu er að vekja umræðu og hvetja til aðgerða um að laga iðn- og verkmenntun í landinu að nýjum aðstæðum og næsta umhverfi.
    Fróðlegt er að staldra eilítið við og skoða skólakerfið í landinu í ljósi nýrra tíma og skilgreina þá kröfu sem við gerum til menntakerfisins og skilvirkni þess. Hér er þó aðeins vikið að einum þætti þess, iðnmenntuninni.
    Aðstæður í þjóðfélaginu hafa breyst á síðari árum. Iðnaðurinn og iðnmenntunin þurfa nú nauðsynlega að laga sig að þeim auknu kröfum sem gerðar eru til iðnaðarmanna og munu verða gerðar í mjög auknum mæli í næstu framtíð. Því er nauðsynlegt nú að endurmeta iðnnámið og skipulag þess í heild.
    Það fyrirkomulag, sem stuðst hefur verið við hvað varðar menntun iðnaðarmanna hefur að miklu leyti verið byggt upp á verknámi hjá meisturum í viðkomandi iðngrein, samhliða bóklegu námi. Þetta kerfi hefur dugað vel og ávinningur þess er tvímælalaus þótt á því megi finna vissa annmarka.

    Það á að skoða hvort nám í einstökum iðngreinum á ekki að vera mislangt eftir því hver iðngreinin er. Hins vegar ber að leggja á það áherslu að allir þeir sem í iðnnám fara gangi sem næst sömu leið til náms.``
    Málefnum iðnfræðslu og verkmenntunar hefur miðað mjög skammt nú um sinn og þætti verkmenntunar þó alveg sérstaklega og er langt í frá að þeim þætti hafi verið sinnt til jafns við bóknámið. Ég fagna þeim orðum sem hæstv. núv. menntmrh. hefur látið falla um þörf aukinnar verkmenntunar í landinu.
    Skólamenn hafa margir áttað sig á því að þessi þáttur fræðslunnar hefur setið eftir til mikils tjóns, ekki aðeins fyrir menntakerfið heldur ekki síður fyrir þá fjölþættu atvinnuuppbyggingu sem við höfum verið að fást við.
    ,,Iðnnemi hefur nú um þrjár leiðir að velja til iðnnáms sem í flestum tilvikum er fjögurra nám:
    1. að fara á samning hjá meistara þegar í upphafi náms og öðlast starfsþjálfun hjá honum á fjórum árum en sækja samhliða verklega náminu bóklegt nám í iðnskóla,
    2. að ljúka bóklegu og verklegu námi í skóla en að því loknu tekur við starfsnám hjá meistara, mislangt eftir lengd skólanámsins,
    3. að byrja í bóklegu námi og ljúka þar ákveðnu grunnnámi, að því loknu tekur við þriggja ára samningur hjá meistara.
    Að loknu fjögurra ára iðnnámi öðlast iðnnemi sveinsbréf en til að hljóta meistarabréf þarf hann að vinna með meistara í þrjú ár og ljúka námi í meistaraskóla.
    Mjög er til athugunar þar sem iðnfræðsluskólar eru starfræktir að leita samstarfs við iðnfyrirtæki á viðkomandi svæði um samstarfssamning sem kveður á um að nemendur, sem innritast í iðnfræðsluskóla og ljúka þar námi, geti í framhaldi þess einnig lokið þeim þætti námsins sem á að fara fram hjá iðnmeistara.
    Í þessu sambandi er til íhugunar hvort ríkisvaldið eigi ekki að koma með ákveðnar aðgerðir sem hvetja iðnmeistara og fyrirtæki til að veita iðnnemum greiða leið til verklegs náms hjá fyrirtækjum sem uppfylla þau skilyrði sem sett eru vegna iðnnáms. Með markvissum aðgerðum í iðnmenntun, eins og hér er lagt til að gerðar verði, eru iðnnemum sköpuð önnur og betri skilyrði til verklegrar kennslu en nú.
    Það er mikils um vert að komast hjá því að lenda í blindgötum kerfisins. Því er skynsamlegt að byggja svo upp að blindgötur verði ekki hindrun á vegi til mennta. Fagna ber þeim hugmyndum, sem nú eru ræddar, um að meistaraskólinn verði beint framhald iðnskóla og iðnmenntunar og gefi þeim er þar ljúka námi greiðari leið til frekara náms standi hugur þeirra til þess.``
    Mikið framfaraspor væri stigið ef þeir er ljúka námi í meistaraskóla og hyggja á frekara tækninám þurfi ekki að stíga skref til baka til frekara náms. Það er enginn vafi að þeir sem gengið hafa þessa braut verkmennta til náms hafa hlotið mjög ákjósanlega þekkingu sem nýtist mjög vel til frekari framþróunar innan atvinnulífsins.
    ,,Ein af forsendum þess að innlendur iðnaður standist aukna samkeppni háþróaðra iðnríkja er að nauðsynlegar úrbætur verði gerðar á iðn- og verkmenntun í landinu. Forsenda aukinnar framlegðar í íslensku atvinnulífi mun í næstu framtíð byggjast á aukinni sérhæfingu og vaxandi verkmenntun. Iðnmenntunina þarf að skilgreina að nýju með tilliti til fjölbreytilegra nýjunga í verklegu og bóklegu námi, bættra tengsla skóla og atvinnulífs og aukinnar fræðslu til almenns rekstrar.
    Kröfurnar um aukið bóklegt nám fara sífellt vaxandi. Þar hafa óskir iðnaðarmanna sjálfra vegið mjög þungt.`` --- Má þar t.d. nefna stóraukna þörf á aukinni þekkingu á almennu bókhaldi, fjármálastjórnun, almennum rekstri og markaðsfræðslu. --- ,,Samhliða auknu bóklegu námi þarf að tryggja betur en verið hefur verklega kennslu og endurmentun, m.a. með auknu fjármagni og margvíslegum stuðningi. Afar áríðandi er jafnhliða þessu starfi að íhuga á hvern hátt megi bæta verkþekkingu þess ófaglæra fólks sem starfar í hinum lögvernduðu iðngreinum. Til athugunar er að taka í auknum mæli upp starfsþjálfun þessa ófaglæra fólks sem í þessum iðngreinum starfar. Slík þjálfun gæfi stig í verkmenntabók, skráða á nafn viðkomandi, sem þá mætti ætla að færði handhafa hennar rétt til bættra kjara.
    Sú stefnumótunarvinna, sem hér er lagt til að fari fram, er best komin hjá fulltrúum atvinnulífsins, og þá sérstaklega iðnaðarins, sem þegar hafa lagt mikið af mörkum í þessum efnum, svo og fulltrúum iðnfræðsluskóla og Iðnnemasambands Íslands.``
    Virðulegi forseti. Ég legg sérstaklega og mjög þunga áherslu á að þetta mikilsverða mál verði best unnið í fullu samráði og samvinnu við fulltrúa iðnaðarins sjálfs og þá aðila er við eiga að búa. Ég treysti því að hæstv. ráðherra gangi svo frá við skipan þessa starfshóps, sem hér er lagt til að komið verði upp, að hin haga hönd iðnaðarmannsins sjálfs komi að þessari mikilsverðu smíði.
    Virðulegi forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að málinu verði vísað til 2. umr. og menntmn.