Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
Virðulegi forseti. Ég þakka flm. fyrir það að hafa komið fram með þessa till. til þál. og mér finnst hann hafa gert það góða grein fyrir því sem fylgir tillögunni að ég er ekki að rekja það. Ég vil taka undir það að ég tel að það þurfi að tengja skólana betur við atvinnulífið en gert er í dag og hef ákveðnar hugmyndir um að það verði gert í miklu ríkari mæli en gert er, m.a. vil ég nefna að húsnæði héraðsskólanna stendur víða ónotað þar sem héraðsskólarnir duttu nánast út úr menntakerfinu. Ég held að bæði húsnæði þeirra og ýmis búnaður gæti nýst til ýmiss konar iðnnáms og uppbyggingar í verkmenntun.
Sú stefna hefur verið tekin upp víða að menntaskólar og iðnskólar hafa verið sameinaðir í fjölbrautaskóla en reynslan sýnir að búnaður sem tilheyrir verkmenntuninni er látinn sitja á hakanum. Þar af leiðandi er það e.t.v. ekki jafnaðlaðandi fyrir nemendur að sækja um inngöngu í verknámið vegna þess að þar vantar svo marga hluti og þá aðstöðu sem menn helst vilja sjá. Verkmenntaskólarnir hafa ekki fengið fjármagn til að búa sig undir það að taka við þessu starfi úr iðnskólunum. Þeir eru vanbúnir og of mikil tilhneiging er til að spara þar, bæði í stofnkostnaði og rekstrarkostnaði.
Ég vil einnig taka undir það að starfsþjálfun þess fólks sem starfar í ýmsum iðngreinum þarf að aukast. Í undirbúningi er að starfsmenntun í atvinnulífinu verði aukin. Ég vona svo sannarlega að það komist til framkvæmda á þessu þingi að lagt verði fram frv. um starfsmenntun í atvinnulífinu og það komist hér í gegn. Það er mikil þörf á því að efla og auka verkmenntunina í landinu og þessi þáltill. sem hér er komin fram er gott innlegg í þá umræðu og ég vona að hún fái hér góðan framgang. Ekki er von til þess að þegar unglingar eru að leita sér að áhugaverðu námi og hugsanlegri atvinnu í framtíðinni að þeir leiti í verkmenntagreinarnar jafnvanbúnar og þær yfirleitt eru í landinu. Bóklega námið hefur yfirleitt alltaf haft forgang. Nú þegar atvinnuástandið er ekki allt of gott, þá er enn meiri tilhneiging hjá ungmennum til að leita í skóla og nýta tímann til menntunar. Það væri hægt að beina fólki í vaxandi mæli í verklegt nám. Ég held að einmitt núna sé tækifæri til að breyta stefnunni svolítið og beina fólki meira í verklega námið en verið hefur.