Atvinnumál á Suðurnesjum

96. fundur
Föstudaginn 06. mars 1992, kl. 11:34:00 (4044)


     Össur Skarphéðinsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég sagði hérna áðan að öllum þingheimi væri það ljóst að sá þingmaður sem talaði áðan, hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson, hefur fært nýjan blæ svo ekki sé meira sagt inn í þann stíl sem

hér ríkir. Og ég verð að segja það eftir að hafa hlustað á síðustu ræðu þessa þingmanns þá velti ég því fyrir mér hversu margar atvinnulausar konur og hversu margir atvinnulausir karlmenn á Suðurnesjum kunna að hafa haft eitthvert gagn af því sem hann sagði áðan í sínu síðasta andsvari.