Hringvegurinn

96. fundur
Föstudaginn 06. mars 1992, kl. 12:35:00 (4052)


     Hrafnkell A. Jónsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vil í tilefni af því sem kom fram hjá hv. síðasta ræðumanni rifja upp og vekja athygli á því að býsna stór hluti af því sem er óuppbyggt af veginum á milli Egilsstaða og Reykjahlíðar í Mývatnssveit er í byggð á Austurlandi, þ.e. vegurinn norður frá Egilsstöðum upp Jökuldal og upp fyrir Skjöldólfsstaði. Þótt ég ætli ekki að fara að svara hér fyrir hv. þm. Austfirðinga hef ég samt trú á því að ekki muni vefjast mjög mikið fyrir þeim sá hluti uppbyggingar norðurvegar. Þetta vildi ég aðeins að kæmi fram en að öðru leyti er ég ekki svo mjög ósammála bollaleggingum hv. síðasta ræðumanns.