Atvinnumál á Suðurnesjum

97. fundur
Mánudaginn 09. mars 1992, kl. 13:38:33 (4089)

     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Þar sem tilkynnt hefur verið að taka eigi fyrir tillögu um atvinnumál á Suðurnesjum og fyrsti flm. tillögunnar, Anna Ólafsdóttir Björnsson, hefur boðað forföll þá mælist ég til þess að umræðunni verði frestað.